Todo es Posible
17.12.2007 23:19:00 / todoesposible

Hasar

Nú er komið að því. Þetta er átaksbloggið mitt. Ég ætla að hafa það nafnlaust, ég er einfaldlega ekki tilbúin í annað. Ég er 16 ára, fædd 1991, og hef verið að berjast við sjálfa mig, berjast við matarfíkn, frá því að ég var 13 ára. Man samt eftir því að hafa haft áhyggjur af holdafarinu alveg miklu fyrr. Alveg síðan ég man fyrst eftir mér hefur mér fundist ég feit, jafnvel þegar ég var smá písl. Ég var samt aldrei feit sem barn, mér bara fannst það. Þegar ég var 13 ára skildu foreldrar mínir og þá áður en ég vissi af var orðin 84 kíló. Þetta var sumarið eftir níunda bekk (held ég hafi verið 14 ára). Ég var sirka 165 cm á þessum tíma. Já þetta sumar eftir níunda bekk tók ég mig á og kom mér niður í 75 kíló fyrir skólabyrjun. Ég fór alveg kolrangt að þessu, borðaði allt of lítið og hreyfði mig allt of mikið miðað við hversu lítið ég borðaði. Ég hætti svo að hugsa um þetta og áður en ég vissi af var ég orðin 79 kíló. Ég tók mig aftur á við lok tíunda bekkjar og er núna 72 kíló og 167 eða 8 cm á hæð. Ég er búin að læra heilmikið um hreyfingu og matarræði á þessum tíma og hef allt til alls til að losa mig við þessi síðustu kíló, en einhvernveginn hef ég verið föst í þessum 72 kílóa pakka núna í fjóra mánuði. Ég veit samt alveg afhverju. Ég hætti að hreyfa mig og tek átköst á kvöldin. Svo tek ég góða kafla, kannski tæpa viku í senn, þar sem ég stend mig alveg rosalega vel og svo alltíeinu hrynur allt niður og ég tek átkast í tvær vikur. Þannig að ég hef ákveðið að halda uppi svona bloggi til að halda mér við efnið. Ég efast um að nokkur maður lesi þetta og er eiginlega alveg sama. Þetta er meira bara fyrir sjálfa mig. Fólki er samt velkomið að lesa þetta röfl mitt og skilja eftir fótspor sín. Alltaf gaman að fá stuðning. Markmið mitt er að missa 9 kíló og verða 63 kíló. Ég veit ekki afhverju ég valdi þessa tölu. Kannski ákveð ég að léttast meira en sem stendur eru 63 kíló markmið mitt.
En já núna er það bara einn dagur í einu. Ég ætla að vikta mig á hverjum mánudegi. Og staðan síðasta mánudag var 72 kíló eða 71,5, annað hvort man það ekki uppá hár. En næsta mánudag koma hérna hárnákvæmar mælingar.

Ég var mjög dugleg í dag. Fór í ræktina og tók hressilega á því í klukkutíma og borðaði nokkuð skynsamlega, borðaði kvöldmat full seint en það gerist nú ekki oft þannig að það sleppur alveg.

Bæjó:*


» 5 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill
Gamalt blogg